- DIY (gerðu það sjálfur)
- HOW TO (hvernig á að..)
- TUTORIAL (kennsla)
- MAKING (búa til...)
- PATTERN (snið/uppskrift)
- KNIT/KNITTING (Prjónles)
- CROCHET (heklað)
- PROJECT (verkefni/verk)
- SEWING (sauma..)
- CRAFT (föndur/handverk)
- FREE (frítt/ókeypis)
- EASY (auðvelt)
- REUSE (endunýta)
- REPURPOSING (endu- nýta/skapa)
- FELTED (eitthvað sem er þæft)
Þýðingarforrit Google gagnast ágætlega í að þýða stök orð til að hjálpa til ef það er eitthvað sem að þið eruð ekki viss með. Ég myndi þó ekki treysta því ef ég væri að skrifa mikilvæg sendibréf. Orð eins og bolur, buxur, efni o.fl þýðast auðveldlega og geta ekki ruglað forritið.
Hvar áttu að leita???
Google - finnur allan fjandann. Hægt er að flakka á milli leitarniðurstaða á vef, mynda og vidjóa.
Bing - er leitarvel Microsoft og vinnur í raun eins og Google.
Youtube - besta video safn í heimi! Hér er hægt að finna allt. Allt frá bíómyndum frá stórframleiðendum til krúttlegra fjölskydlu myndbanda frá fólki út í heimi. Mikið af fólki er duglegt að setja inn allskyns leiðbeiningarmyndbönd þarna UM ALLT.
WikiHow - er vefur sem ég hef bara nýlega byrjað að nota. Held það sé nánast hægt að finna hvað sem er þarna inná, bara ef að þú finnur réttu orðin til að leita.
Facebook - svo til allir eru tengdir Facebook í dag. Nýttu þér viskubrunn vina þinn og leyfðu þér að spyrja og leita upplýsinga hjá þeim.
Skoðaðu tengla! - Þú finnur kannski flotta síðu með mikið af hugmyndum. Farðu í gengum tenglanna hjá viðkomandi aðila og athugaðu hvort að þú finnir ekki eitthvað sem er enn meira spennandi. Þannig hefur tenglalistinn minn lengst smátt og smátt.
MUNDU að internetið hefur ómælanlega mikið af hugmyndum og upplýsingum fyrir þig. Þú þarft bara að finna það sem þú leitar að.
No comments:
Post a Comment