24.2.11

ReStyle


FY'RIR

EFTIR

Tók þessa gömlu upplituð koktöflu og málaði hana hvíta... smellti svo blúndu efni yfir hana... notaði blúndu kant að neðan svona extra til að búa til "haldara" fyrir nafnspjöld eða aðra miða.


15.2.11

Knitbird!



Knitbird er teikniforrit fyrir prjónamunstur. Forritið gerir þér kleift að teikna munstur á auðveldan hátt sem þú svo getur vistað sem PDF skrár.

Þetta er náttúrulega alger snilld ég segi ekki annað.
Hægt er að nálgast forritið og lesa meira um það hér

14.2.11

Ikea kollurinn minn - ReStyle


FYRIR



Ég á 4 Ikea kolla sem eru komnir til ára sinna. Eru þó alveg í fullkomnu lagi. Setan er þó orðin ljót og blettótt og blettirnir vilja ekki af.

EFTIR


Ég áhvað að prófa að hekla utan um hana (setuna), skáldaði eitthvað jafnóðum og ég hélt áfram og ég er mjög sátt með útkomuna. Ég er áhveðinn að gera eins á hina 3 sem eru eftir berrassaðir, bara í örðum lit.

9.2.11

Restyle nr 2


Hillan fyrir Restyle
Ég kíkti í Góða hirðinn um daginn og fékk þessa litlu krúttlegu hillu á 150 kr. heilar!  Hún var nú svo sem ekkert sérlega falleg á litinn ... rauðbæsuð og upplituð hér og þar. EN það stoppar mann ekki í þvi að kaupa sumt... mér datt strax í hug að ég gæti smellt einhverri málingu á hana og dúllast eitthvað við hana, sem ég hef lokið við núna og er bara nokku sátt við útkomuna.                     Í þetta verkefni notaði ég; hillu (150.- kr), gamall slitinn kjóll (0.- kr), skáband (átti það til frá gamalli tíð), vélalakk (ca. 1000.- kr, og mikill afgangur eftir), pensill (150.- kr), doble tape (400.-kr, afgangur af því). Kostnaður er því um 1700.- kr og ekki einu sinni það því ég á enn málinguna, pensilinn og doble tabe sem ég get notað í eitthvað fleira.



Hillan eftir Restyle

Fleiri myndir af ferlinu er hægt að skoða HÉR

4.2.11

Það tókst!

Í gærmorgun hóf ég smíði á rúmgaflinum sem ég er búin að hugsa um síðan í byrjun árs. Ég stökk eiginlega bara í djúpulaugina því ég hef ekki beint smíðað neitt sem gæti flokkast sem húsgagn nokkurn tíman áður. Hvað þá bólstrað. Þetta gekk allt svo ljómandi vel og útkoman er alveg ótrúlega töff. Einföld og plain en samt töff.


Eyþór Bergmann sérlegur aðstoðarmaður minn



Eyþór sonur minn var sérlegur aðstoðarmaður minn í fyrri hlutaverksins og fannst þetta ekkert lítið spennandi allt saman. Enda ekki nema von. Þar sem að það er hrikalega mikið af "karlgenum" í honum. Takkar, tæki og tól eru í hans uppáhaldi.


Ingvar Guðni sá um heftibyssuna
Það er ekki laust við það að ég hafi verið eilítið stressuð þegar við fórum í að sníða leðurlíkið á gaflinn. Einnig þurfti ég að sauma horn á þetta og þurfti þá að sauma þau miðað við eins og við ætluðum að strekja þetta niður. Giskið okkar passaði mjög vel og þetta lagðist allt mjög fallega. Ég hefði sannarlega ekki getað þetta án Ingvars míns.

Rúmgaflinn komin á sinn stað
 Loka útkoman er svona. Mér finnst þetta æðislegt og þetta gæti ekki verið meira eins og ég hafði hugsað mér að hafa það.
Eftir að hafa prófað þetta er ég hiklaust á því að það er ekki svo galið að .... leyfa sér að prófa!

Festingin á veggnum

Festingin á gaflinum


Fellur alveg að veggnum þegar þetta
er sett saman.
 











Nauðsynlegt er að vera tveir þegar kemur að því að líma svampinn niður og svo strekkja niður efnið. Það er allavega klárlega mun þægilegra.

2.2.11

Verkefni síðustu daga

Það er svo sem ekkert nýtt að ég sé alltaf að gera eitthvað i höndunum. En þessa daganna er nóg um að vera. Ég hef verið að gera hitt og þetta, auk þess að sjá um bókhald og heimili. Sumum finnst ég klikkuð. En mér finnst gott að hafa mikið að gera. Í dag fæ ég svo spíturnar í gaflinn sem ég er að fara að smíða. Hlakka ekkert lítið til að sjá hann uppsettann.






Heklaði utan um kertaglas úr Ikea



Prófaði að gera blóm

Blóm í gardínurnar hennar mömmu
Vettlingar fyrir dóttir mína
 
Gerði kraga fyrir dóttir mína


Kláraði peysu á mig