 |
| Hillan fyrir Restyle |
Ég kíkti í
Góða hirðinn um daginn og fékk þessa litlu krúttlegu hillu á 150 kr. heilar! Hún var nú svo sem ekkert sérlega falleg á litinn ... rauðbæsuð og upplituð hér og þar. EN það stoppar mann ekki í þvi að kaupa sumt... mér datt strax í hug að ég gæti smellt einhverri málingu á hana og dúllast eitthvað við hana, sem ég hef lokið við núna og er bara nokku sátt við útkomuna. Í þetta verkefni notaði ég; hillu (150.- kr), gamall slitinn kjóll (0.- kr), skáband (átti það til frá gamalli tíð), vélalakk (ca. 1000.- kr, og mikill afgangur eftir), pensill (150.- kr), doble tape (400.-kr, afgangur af því). Kostnaður er því um 1700.- kr og ekki einu sinni það því ég á enn málinguna, pensilinn og doble tabe sem ég get notað í eitthvað fleira.
 |
| Hillan eftir Restyle |
Fleiri myndir af ferlinu er hægt að skoða HÉR
No comments:
Post a Comment