4.2.11

Það tókst!

Í gærmorgun hóf ég smíði á rúmgaflinum sem ég er búin að hugsa um síðan í byrjun árs. Ég stökk eiginlega bara í djúpulaugina því ég hef ekki beint smíðað neitt sem gæti flokkast sem húsgagn nokkurn tíman áður. Hvað þá bólstrað. Þetta gekk allt svo ljómandi vel og útkoman er alveg ótrúlega töff. Einföld og plain en samt töff.


Eyþór Bergmann sérlegur aðstoðarmaður minn



Eyþór sonur minn var sérlegur aðstoðarmaður minn í fyrri hlutaverksins og fannst þetta ekkert lítið spennandi allt saman. Enda ekki nema von. Þar sem að það er hrikalega mikið af "karlgenum" í honum. Takkar, tæki og tól eru í hans uppáhaldi.


Ingvar Guðni sá um heftibyssuna
Það er ekki laust við það að ég hafi verið eilítið stressuð þegar við fórum í að sníða leðurlíkið á gaflinn. Einnig þurfti ég að sauma horn á þetta og þurfti þá að sauma þau miðað við eins og við ætluðum að strekja þetta niður. Giskið okkar passaði mjög vel og þetta lagðist allt mjög fallega. Ég hefði sannarlega ekki getað þetta án Ingvars míns.

Rúmgaflinn komin á sinn stað
 Loka útkoman er svona. Mér finnst þetta æðislegt og þetta gæti ekki verið meira eins og ég hafði hugsað mér að hafa það.
Eftir að hafa prófað þetta er ég hiklaust á því að það er ekki svo galið að .... leyfa sér að prófa!

Festingin á veggnum

Festingin á gaflinum


Fellur alveg að veggnum þegar þetta
er sett saman.
 











Nauðsynlegt er að vera tveir þegar kemur að því að líma svampinn niður og svo strekkja niður efnið. Það er allavega klárlega mun þægilegra.

1 comment: