Ég lauk við að koma tenglasafninu mínu úr favorites barnum í Explorer inn í tenglanna hér. Hugsa að ég eigi samt eftir að flokka "ýmsar síður" eitthvað meira. Mig grunaði ekki að ég væri búin að skoða og heillast af svona mörgum síðum. Miðað við að ég var heltekin af prjóni og hekli fyrir um 4 mán eða svo. En það er alltaf gaman að skoða hvað aðrir eru að brasa og fá innblástur.
Ég setti inn einnig flipa hér að ofan þá "HUGMYNDIR" og "LYKILORÐ Í LEIT" sem ég vona að muni ýta ykkur sem hafið áhuga á að skella ykkur bara í að prófa. Það fer ekki verr en illa! Það er gaman að segja frá því að bara út frá þessu fikti í mér með að leyfa mér að prófa að gera eitthvað sem mér finnst sniðugt er ég búin að láta "plata" mig út í að mæta á Héraðsbókasafn Rangæinga og sýna hvað ég er búin að vera að brasa síðustu daga og vikur. Handavinnukvöldið er á nk. miðvikudag, 26. janúar kl.20:00. Ég vona að ég geti veitt einhverjum smá innblástur eða hugmyndir, þó það væri ekki nema bara 1 manneskja er takmarkinu náð.
Endurnýting í hávegum höfð
No comments:
Post a Comment