28.1.11

Næsta verkefni!

Ég sá hálsmen, sem mér þykir afskaplega fallegt.
 Ég hugsaði strax; "Ég hlít að geta búið þetta til!"

Þetta hálsmen er til sölu hjá http://www.ernafot.is/

Ég fór og leitaði á Google með orðunum "fabric flower" (efnis/tau blóm). Niðurstöðurnar voru frábærar og ég er búin að skoða mikið og fá yndislega margar hugmyndir sem ég á pott þétt eftir að nota einhvern tíman. Og viti menn ég fann tutorial (kennslu) í því hvernig maður gerir nákæmlega svona blóm eins og er í þessu hálsmeni hér til vinstri. Sem kætir mig ekkert lítið. Ég er því harðáhveðin að gera slíkt hálsmen, leyfa mér að prófa! Það væri bara bull að gera það ekki!

                En auðvitað af því að ég fann fullt af síðum með flottum blómum og enn betri hugmyndum er ég búin að finna svona um 20 verkefni sem mig langar líka að prófa með þessu vafri mínu. Þannig vinda hlutirnir upp á sig og ég er nánast komin með valkvíða yfir þessu öllu saman. Ég ítreka því ánægju mína með innihaldi og upplýsingarnar sem að internetið góða hefur að geyma og er steinhissa á því að ég hafi ekki byrjað á þessu miklu fyrr.

Væntanleg verkefni eru; hálsmenið hér að ofan, rúmgafl í "hjónaherbegissvítuna" okkar og náttkjóll á mig úr gömlu satín sængurveri.

No comments:

Post a Comment