Peysan var ekki að nýtast mér og eiginlega bara of lítil og kjánaleg. Ég tók þá af skarið og gerði mitt fyrsta ReStyle verkefni og gerði peysu á Þórunni Evu mína úr henni. Blómið setti ég á gat sem ég sá ekki fram á að geta lagað svo lítið bæri á. Talan á blóminu er aukatala sem fylgdi peysunni.
Ég er bara nokkuð sátt við útkomuna en á eftir að leyfa dömunni að máta. Hún verður vonandi ánægð með nýja flík.
No comments:
Post a Comment