Ég sá þessa hugmynd fyrst á síðunni "Handóð" og langaði strax að prófa. Elín heklari gerir margt skemmtilegt sem er vert að skoða á síðunni hennar. Þar er meira að segja að finna nokkrar uppskriftir sem að hún hefur komið sjálf niður á blað.
Ég notaði frekar gróft garn í þetta og er smekkurinn misjafnt hvort fólk vill hafa svona fingert eða gróft. Ég er mjög sátt með útkomuna og er alveg viss um að ég eigi eftir að gera fleiri. Auðvitað er líka hægt að hekla utan um krukkur og geyma svo eitthvað í þeim og nýta lokið líka. T.d. undir bómullarhnoðra, eyrnapinna inn á baði, eða tvinna og spólur i saumaskapnum. Um að gera að leyfa sér að prófa!
| Koma skemmtilega út þegar kertin eru komin í |
| Mikið hægt að leika sér með þessa hugmynd |
Þar sem að ég er "vanur" heklari skáldaði ég bara eitthvað jafnóðum og ég hélt áfram. Þær eru alls ekki allar eins þegar upp er staðið. En hver segir að þær þurfi endilega að vera allar eins. Það er aldrei að vita nema ég festi þetta á blað til að deila með ykkur, ef einhver áhugi er fyrir því. Engar hundakúnstir í þessu hekli eingöngu fastapinnar, loftlykkur og 1faldur stuðull.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri!
These are so very pretty. Your work is lovely!
ReplyDeleteKristina J.
Tjah, ef ég kynni nú bara að hekla... Ég hef reynt með frekar disasterous útkomu.
ReplyDeleteÞað er í raun ekki svo flókið. Ekki frekar en annað þegar maður kann það. Ég lærði hjá ömmu, hún var einstaklega þolinmóð, eða ég svona rosa bræt!
ReplyDelete