Ég hannaði vettlinga .... múmínsnáðinn varð fyrir valinu í myndefnið. útkoman er þessi. Uppskriftin er til sölu fyrir 300 kr. fyrir þá sem vilja eignast hana.
18.3.11
Geymslu staður
Smellti mér í smá verkefni í kvöld. Einfalt og þægilegt. Hráefni var ósköp lítið. Kakódolla, leðurlíkisbútur (afgangur úr gaflinum) og nylon band.
Ég klæddi sem sagt kakódolluna í smá föt og saumaði leður líkið utan um hana með grófu spori ... fannst það flottara... munaði minnstu að búturinn myndi ekki ná utan um.
Ég klæddi sem sagt kakódolluna í smá föt og saumaði leður líkið utan um hana með grófu spori ... fannst það flottara... munaði minnstu að búturinn myndi ekki ná utan um.
......................................................
9.3.11
Krókudíla hekl....
Krókudílahekl er eitthvað sem að ég bara verð að prófa..... það er svo fallegt.... hrikalega fallegt!
| ... |
video má sjá hér
24.2.11
ReStyle
15.2.11
14.2.11
Ikea kollurinn minn - ReStyle
Ég á 4 Ikea kolla sem eru komnir til ára sinna. Eru þó alveg í fullkomnu lagi. Setan er þó orðin ljót og blettótt og blettirnir vilja ekki af.
Ég áhvað að prófa að hekla utan um hana (setuna), skáldaði eitthvað jafnóðum og ég hélt áfram og ég er mjög sátt með útkomuna. Ég er áhveðinn að gera eins á hina 3 sem eru eftir berrassaðir, bara í örðum lit.
| FYRIR |
Ég á 4 Ikea kolla sem eru komnir til ára sinna. Eru þó alveg í fullkomnu lagi. Setan er þó orðin ljót og blettótt og blettirnir vilja ekki af.
| EFTIR |
Ég áhvað að prófa að hekla utan um hana (setuna), skáldaði eitthvað jafnóðum og ég hélt áfram og ég er mjög sátt með útkomuna. Ég er áhveðinn að gera eins á hina 3 sem eru eftir berrassaðir, bara í örðum lit.
9.2.11
Restyle nr 2
Ég kíkti í Góða hirðinn um daginn og fékk þessa litlu krúttlegu hillu á 150 kr. heilar! Hún var nú svo sem ekkert sérlega falleg á litinn ... rauðbæsuð og upplituð hér og þar. EN það stoppar mann ekki í þvi að kaupa sumt... mér datt strax í hug að ég gæti smellt einhverri málingu á hana og dúllast eitthvað við hana, sem ég hef lokið við núna og er bara nokku sátt við útkomuna. Í þetta verkefni notaði ég; hillu (150.- kr), gamall slitinn kjóll (0.- kr), skáband (átti það til frá gamalli tíð), vélalakk (ca. 1000.- kr, og mikill afgangur eftir), pensill (150.- kr), doble tape (400.-kr, afgangur af því). Kostnaður er því um 1700.- kr og ekki einu sinni það því ég á enn málinguna, pensilinn og doble tabe sem ég get notað í eitthvað fleira.
| Hillan fyrir Restyle |
| Hillan eftir Restyle |
Fleiri myndir af ferlinu er hægt að skoða HÉR
4.2.11
Það tókst!
Í gærmorgun hóf ég smíði á rúmgaflinum sem ég er búin að hugsa um síðan í byrjun árs. Ég stökk eiginlega bara í djúpulaugina því ég hef ekki beint smíðað neitt sem gæti flokkast sem húsgagn nokkurn tíman áður. Hvað þá bólstrað. Þetta gekk allt svo ljómandi vel og útkoman er alveg ótrúlega töff. Einföld og plain en samt töff.
Eyþór sonur minn var sérlegur aðstoðarmaður minn í fyrri hlutaverksins og fannst þetta ekkert lítið spennandi allt saman. Enda ekki nema von. Þar sem að það er hrikalega mikið af "karlgenum" í honum. Takkar, tæki og tól eru í hans uppáhaldi.
Það er ekki laust við það að ég hafi verið eilítið stressuð þegar við fórum í að sníða leðurlíkið á gaflinn. Einnig þurfti ég að sauma horn á þetta og þurfti þá að sauma þau miðað við eins og við ætluðum að strekja þetta niður. Giskið okkar passaði mjög vel og þetta lagðist allt mjög fallega. Ég hefði sannarlega ekki getað þetta án Ingvars míns.
Loka útkoman er svona. Mér finnst þetta æðislegt og þetta gæti ekki verið meira eins og ég hafði hugsað mér að hafa það.
Eftir að hafa prófað þetta er ég hiklaust á því að það er ekki svo galið að .... leyfa sér að prófa!
Nauðsynlegt er að vera tveir þegar kemur að því að líma svampinn niður og svo strekkja niður efnið. Það er allavega klárlega mun þægilegra.
| Eyþór Bergmann sérlegur aðstoðarmaður minn |
Eyþór sonur minn var sérlegur aðstoðarmaður minn í fyrri hlutaverksins og fannst þetta ekkert lítið spennandi allt saman. Enda ekki nema von. Þar sem að það er hrikalega mikið af "karlgenum" í honum. Takkar, tæki og tól eru í hans uppáhaldi.
| Ingvar Guðni sá um heftibyssuna |
| Rúmgaflinn komin á sinn stað |
Eftir að hafa prófað þetta er ég hiklaust á því að það er ekki svo galið að .... leyfa sér að prófa!
| Festingin á veggnum |
| Festingin á gaflinum |
| Fellur alveg að veggnum þegar þetta er sett saman. |
Nauðsynlegt er að vera tveir þegar kemur að því að líma svampinn niður og svo strekkja niður efnið. Það er allavega klárlega mun þægilegra.
2.2.11
Verkefni síðustu daga
| Heklaði utan um kertaglas úr Ikea |
| Prófaði að gera blóm |
| Blóm í gardínurnar hennar mömmu |
| Vettlingar fyrir dóttir mína |
| Gerði kraga fyrir dóttir mína |
| Kláraði peysu á mig |
28.1.11
Næsta verkefni!
Ég sá hálsmen, sem mér þykir afskaplega fallegt.
Ég hugsaði strax; "Ég hlít að geta búið þetta til!"
Ég hugsaði strax; "Ég hlít að geta búið þetta til!"
![]() |
| Þetta hálsmen er til sölu hjá http://www.ernafot.is/ |
Ég fór og leitaði á Google með orðunum "fabric flower" (efnis/tau blóm). Niðurstöðurnar voru frábærar og ég er búin að skoða mikið og fá yndislega margar hugmyndir sem ég á pott þétt eftir að nota einhvern tíman. Og viti menn ég fann tutorial (kennslu) í því hvernig maður gerir nákæmlega svona blóm eins og er í þessu hálsmeni hér til vinstri. Sem kætir mig ekkert lítið. Ég er því harðáhveðin að gera slíkt hálsmen, leyfa mér að prófa! Það væri bara bull að gera það ekki!
En auðvitað af því að ég fann fullt af síðum með flottum blómum og enn betri hugmyndum er ég búin að finna svona um 20 verkefni sem mig langar líka að prófa með þessu vafri mínu. Þannig vinda hlutirnir upp á sig og ég er nánast komin með valkvíða yfir þessu öllu saman. Ég ítreka því ánægju mína með innihaldi og upplýsingarnar sem að internetið góða hefur að geyma og er steinhissa á því að ég hafi ekki byrjað á þessu miklu fyrr.
Væntanleg verkefni eru; hálsmenið hér að ofan, rúmgafl í "hjónaherbegissvítuna" okkar og náttkjóll á mig úr gömlu satín sængurveri.
26.1.11
Frá látlausri glerkrukku í fallegan kertastjaka
Ég sá þessa hugmynd fyrst á síðunni "Handóð" og langaði strax að prófa. Elín heklari gerir margt skemmtilegt sem er vert að skoða á síðunni hennar. Þar er meira að segja að finna nokkrar uppskriftir sem að hún hefur komið sjálf niður á blað.
Ég notaði frekar gróft garn í þetta og er smekkurinn misjafnt hvort fólk vill hafa svona fingert eða gróft. Ég er mjög sátt með útkomuna og er alveg viss um að ég eigi eftir að gera fleiri. Auðvitað er líka hægt að hekla utan um krukkur og geyma svo eitthvað í þeim og nýta lokið líka. T.d. undir bómullarhnoðra, eyrnapinna inn á baði, eða tvinna og spólur i saumaskapnum. Um að gera að leyfa sér að prófa!
| Koma skemmtilega út þegar kertin eru komin í |
| Mikið hægt að leika sér með þessa hugmynd |
Þar sem að ég er "vanur" heklari skáldaði ég bara eitthvað jafnóðum og ég hélt áfram. Þær eru alls ekki allar eins þegar upp er staðið. En hver segir að þær þurfi endilega að vera allar eins. Það er aldrei að vita nema ég festi þetta á blað til að deila með ykkur, ef einhver áhugi er fyrir því. Engar hundakúnstir í þessu hekli eingöngu fastapinnar, loftlykkur og 1faldur stuðull.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri!
25.1.11
Pjattrófur
Ég er að fíla hvað Pjattrófurnar eru að taka fyrir. Svo margar skemmtilegar og góðar hugmyndir... um svo margt... ég er þó sérstaklega heilluð af hönnunar flokknum.
Endilega kíkið á....
Endilega kíkið á....
20.1.11
Allt að smella...
Ég lauk við að koma tenglasafninu mínu úr favorites barnum í Explorer inn í tenglanna hér. Hugsa að ég eigi samt eftir að flokka "ýmsar síður" eitthvað meira. Mig grunaði ekki að ég væri búin að skoða og heillast af svona mörgum síðum. Miðað við að ég var heltekin af prjóni og hekli fyrir um 4 mán eða svo. En það er alltaf gaman að skoða hvað aðrir eru að brasa og fá innblástur.
Ég setti inn einnig flipa hér að ofan þá "HUGMYNDIR" og "LYKILORÐ Í LEIT" sem ég vona að muni ýta ykkur sem hafið áhuga á að skella ykkur bara í að prófa. Það fer ekki verr en illa! Það er gaman að segja frá því að bara út frá þessu fikti í mér með að leyfa mér að prófa að gera eitthvað sem mér finnst sniðugt er ég búin að láta "plata" mig út í að mæta á Héraðsbókasafn Rangæinga og sýna hvað ég er búin að vera að brasa síðustu daga og vikur. Handavinnukvöldið er á nk. miðvikudag, 26. janúar kl.20:00. Ég vona að ég geti veitt einhverjum smá innblástur eða hugmyndir, þó það væri ekki nema bara 1 manneskja er takmarkinu náð.
Endurnýting í hávegum höfð
18.1.11
Mitt fyrsta ReStyle!
Peysan var ekki að nýtast mér og eiginlega bara of lítil og kjánaleg. Ég tók þá af skarið og gerði mitt fyrsta ReStyle verkefni og gerði peysu á Þórunni Evu mína úr henni. Blómið setti ég á gat sem ég sá ekki fram á að geta lagað svo lítið bæri á. Talan á blóminu er aukatala sem fylgdi peysunni.
Ég er bara nokkuð sátt við útkomuna en á eftir að leyfa dömunni að máta. Hún verður vonandi ánægð með nýja flík.
17.1.11
Ný!
Það kom að því að ég myndi opna á blogspot... hef fundið svo mikið af bloggum hjá blogspot sem að ég er ástfangin af...
Hér ætla ég að safna saman hugmyndum sem að ég er heilluð af og langar að prófa. Ég hefði aldrei trúað því að hægt væri að finna jafn mikið af upplýsingum um allskyns handavinnu á netinu bara ef að þú finnur réttu orðin til að leita með í t.d. Google.
Ég ætla að vinna í því smátt og smátt að koma öllum þeim tenglum sem ég hef safnað að mér í gengum árin og mánuðina inn á síðuna til að deila með ykkur sem hafið áhuga á.
Hér ætla ég að safna saman hugmyndum sem að ég er heilluð af og langar að prófa. Ég hefði aldrei trúað því að hægt væri að finna jafn mikið af upplýsingum um allskyns handavinnu á netinu bara ef að þú finnur réttu orðin til að leita með í t.d. Google.
Ég ætla að vinna í því smátt og smátt að koma öllum þeim tenglum sem ég hef safnað að mér í gengum árin og mánuðina inn á síðuna til að deila með ykkur sem hafið áhuga á.
Subscribe to:
Comments (Atom)

